Langt síđan síđast..
Ok, kannski er ég bara eitthver lásí bloggari sem gefst alltaf upp eftir kannski hálft ár eða eitthvað þannig, en það skiptir ekki því ég byrja pottó alltaf aftur og því eyði ég ekki síðunni!
Vá...Hvað er ég eiginlega búin að vera með margar síður? þær eru um svona 8-10! var alger blogghóra í den, það var svo töff að hafa 9 í síðunöfnunum og "z" og svona "-" mér finnst það bókstaflega ógeðslega asnalegt núna, hah..
En allavega þá er ég flutt í Grindavík aftur, vá hvað það er mikill léttir..Líður mikið betur núna en auðvitað sakna ég allra á vistinni og í bekknum og svona :) Sérstaklega stelpukvöldin hjá okkur vinkonunum úr bekknum, alltaf með TONN af nammi..Alltaf að panta Greifa og eitthvað! haha endalaust gaman hjá okkur.. En allt á sér kosti og galla!
Ég og Þórhallur fórum í bíó í kvöld á Untraceable, kann ekki alveg að skrifa.. En vá! Myndin svo góð með svo leiðinlegan endi :( Vorum geðveikt svekkt! Ég held að allar nýju myndinar núna í dag enda aldrei vel, held að það sé eitthver roooooosa tíska að enda myndir svo fólk verði pirrað og bíði kannski eftir framhaldi sem verður aldrei, æ svo getur ekkert verið framhald af þessum myndum með þessa slæmu enda!
Heyrðu ég er byrjuð í lóninu í aukavinnu og fæ ekki fasta fyrr en gunnsa og kæró flytja til spain sem verður í mars! og þá byrja ég fast í bistróinu. Er á veitingastaðnum Lava núna, sem er alveg fínt en ég sakna smá bistósins þarsem ég kann allt mikið betur þar og svona ;)
Svo er ég líka byrjuð í fjarnámi við Versló og það gengur alveg svona semi, á erfitt með að opna forrit sem ég þarf að skila og svona en það kemur allt.
Ég fór í heimsókn til Hauks bróðurs um helgina og þá ákváðum við að ég, Haukur, Alexandra og kannski fleira af skyldmönnum ætlum til Dublin í sumar í giftingu til Kenny's frænda sem býr í USA! Alveg geggjað þarsem ég hef ALDREI séð frændsystkinin mín og fæ að sjá þau öll í sumar, get ekki beðið!
En Eva, bara að segja þér að ég er alltaf að dreyma drauma sem er fyrirboði veikinda, vandræða og eitthvað þannig :/ ekkert smá leiðinlegt og ég vil að allir passi sig sem þekkja mig því þeir eiga kannski von á eitthverjum veikindum!
Ég er farin þá að horfa á L-word og reyna að sofna..Gaman að blogga þetta blogg hehe jeij, ÞANGAÐ TIL NÆST :) !!
6 athugasemdir
